Sagafilm

Fara i siduyfirlit

Heiti síðu

Eftirvinnslan

Sagafilm framleiðir á ári hverju hundruðir auglýsinga fyrir sjónvarp þar sem sérhver rammi nýtur alúðar og umhyggju sérhæfðra starfsmanna eftirvinnsludeildarinnar. Sama gildir um þá tugi klukkutíma af dagskrárefni sem renna í gegnum tækin áður en framleiðslan lendir á útsendingarhillum stöðvanna.

Einu gildir hvort um er að ræða klippingu, hljóðsetningu, grafík eða sérstakar brellur, sem gera punktinn yfir i-ið í hverju verkefni. Allir reiða sig á hæfileika og samstarfsvilja þeirra sem sjá um lokasprettinn.

Starfsfólk eftirvinnslunnar hjá Sagafilm býr yfir sérþekkingu á töfrabrögðum og notkunarmöguleikum tækninnar. Og tækjakosturinn er sá besti sem völ er á. Sérhæfðir starfsmenn Sagafilm vinna á hverjum degi með tækni, sem keppinautarnir lesa um í fagtímaritunum.

Margmiðlun

Margmiðlunardeild Sagafilm er í örum vexti og fleiri forgangsverkefni á sviðinu auka á sérþekkingu starfsfólksins.
» Meira

Klipping og hljóð

Tækjakosturinn er sá besti á landinu og fagmenn í úrvalsflokki skipa hvert rúm.
» Meira

Hönnun, grafík og brellur

Um fátt geta jafn margir orðið jafn ósammála og grafík og hönnun á þeim vegi sem hugmyndin fer frá fyrsta neista til fullbúinnar vöru.
» Meira

DVD-útgáfa

Sagafilm hefur komið sér upp fullkominni DVD-vinnslu og þar með er hægt að leysa hvaða verkefni sem er fyrir dreifingu á DVD, smá sem stór.
» Meira


Leita