Passat Luxus frá öðru sjónarhorni
Við viljum gjarna halda í þá skoðun að veröldin okkar sé ekki bara svört og hvít heldur endalaus lifandi litbrigði. En ef við nú stöldrum við um stund og fjarlægjum litina, gerum við okkur kannski betur grein fyrir litauðgi hversdagslífsins.
Í nýjustu auglýsingu sinni fyrir Passat, hefur Sævar Guðmundsson leikstjóri valið að stefna okkur á vit andstæðunnar. Bíllinn, Volkswagen Passat, líður um í svart hvítum draumaheimi í félagsskap söngs og tóna, sem Barði Jóhannsson í Bang Gang samdi sérstaklega fyrir verkið. Auglýsingin er tekin upp á 35mm filmu á ýmsum stöðum í Reykjavík og við Nesjavelli.
|