Síminn Júdas 3G
Einhver umtalaðasta auglýsing síðari tíma framleidd af Sagafilm í samstarfi við Ennemm fyrir símann.
Auglýsing Símans fyrir 3G tæknina hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir snilldarlega útfærslu á einu frægasta matarboði mannkynssögunnar síðustu kvöldmáltíðinni. Myndin sýnir Jesú nýta sér 3G tæknina til að eiga myndsímtal við Júdas sem var eitthvað seinn fyrir vegna útréttinga niður í bæ. Þrátt fyrir að hugmyndin hafi verið kynnt biskupsstofu sem gerði enga sérstaka athugasemd við handritið urðu viðbrögðin ansi hörð bæði frá kirkjunnar mönnum og almenningi. Þannig varð auglýsingin tilefni umfjöllunnar bæði á Stöð2 og RÚV þar sem menn tókust á um réttmæti auglýsingar af þessu tagi. Það var Jón Gnarr sem átti hugmyndina og handritið ásamt því að leika sjálfur Júdas á eftirminnilegan hátt, en Björn Hlynur Haraldsson fór með hlutverk Jesú. Myndin var tekin upp í Portúgal undir leikstjórn Samma og Gunna en það var Sebastian Pfaffenbichler sem sá um kvikmyndatöku.
|