Sagafilm

Fara i siduyfirlit

Heiti síðu

Bjarnfreðarson

Átakasaga sem nær yfir hálfa öld. Eilífðarstúdentinum Georgi Bjarnfreðarsyni hefur verið sleppt úr fangelsi. Hann er þó enn fangi eigin fortíðar.

BJARNFREÐARSON segir átakanlega sögu af GEORGI. Gæfulaus og úr takti við þjóðfélagið leitar Georg að sáluhjálp áður en tíma hans lýkur. Bjarnfreðarson er byggð á hinum vinsælu og margverðlaunuðu þáttaröðum -Nætur, -Dag og Fangavakt sem ætti að vera orðin Íslendingum að góðu kunnar. Bjarnfreðarson er lokakafli í sögunni um fyrrum samstarfsmenn og vini Georgs, ofmenntaðs besservissers sem er útskúfaður úr samfélagi mannanna; DANÍEL SÆVARSSON, ungur maður sem á fullt í fangi með að viðhalda lygavef sem hann hefur spunnið í kringum sig til að blekkja fjölskyldu sína í að halda að hann sé að ljúka læknisfræði; ÓLAFUR RAGNAR, mannsbarn á fertugsaldri sem er enn að reyna að falla í hópinn.

 

Sagan hefst þegar Georg losnar úr fangelsi eftir að hafa afplánað dóm fyrir morð. Þegar móðir Georgs, BJARNFREÐUR neitar honum að búa hjá sér og í raun afneitar honum, tekur Daníel, sem Georg reyndi að koma sök á fyrir morðið, hann að sér og býður honum að gista þar til hann er búinn að koma undir sig fótunum. Fyrrum samstarfsmaður þeirra, Ólafur Ragnar býr þá þegar hjá Daníeli. Ólafur er elskulegur aumingi sem hefur ekki tekist að halda vinnu lengur en í nokkrar vikur í senn. Dvöl hans hjá Daníeli er farin að fara í taugarnar á Ylfu, eiginkonu Daníels. Þegar þessir þrír menn koma saman er yfirleitt ekki von á góðu.

 

Daníel neyðist til að afhjúpa lygarnar um læknanámið sem voru í raun yfirskin á meðan hann lýkur listaháskóla þar sem hann tekst á við vídeólistaverk um Georg. Gæfan lítur loks við Ólafi þegar honum er boðið draumastarfið hjá útvarpsstöð. Þar eignast hann vini og nær vinsældum, bæði meðal hlustenda og samstarfsfélaga. Vinsældum Ólafs er stefnt í voða þegar Georg fer að sýna Ólafi rómantískan áhuga frammi fyrir samstarfsmönnum Ólafs sem hann keppist við að ganga í augun á. Á meðan á þessu öllu stendur þarf Georg að takast á við drauga fortíðar sinnar og Bjarnfreðar. Heimur Georgs verður hægt og bítandi að engu og hann gerir sér grein fyrir því að flesta þeirra drauga sem hann glímir við má rekja til móður hans og er algjört uppgjör óhjákvæmilegt. Áhorfandinn fær reglulega að kíkja í glugga fortíðar og fylgjast með Georgi á sínum uppvaxtarárum. Einnig fáum við að kynnast því þegar atvinnumótmælandinn, kommúnistinn og femínistinn Bjarnfreður fer út fyrir allar línur þess sem eðlilegt getur talist í skoðunum sínum, ofurpólitískri rétthugsun og frjálshyggju. Við verðum vitni að fæðingu allra galla sem Georg á við að etja í sínu fari. Smá saman falla grímurnar sem Georg hefur sett upp yfir ævina og áhorfendum fer að þykja vænt um manninn sem flestir hafa, hingað til, elskað að hata. BJARNFREÐARSON er samtímis gamanmynd og hörmungarsaga um ást, lygar og allflest litbrigði þess sem mannlegt getur talist.

 

HÖFUNDAR. Ragnar Bragason: Leikstjóri sjónvarpsþáttanna og bíómyndarinnar um þríeykið. (Sjá neðar) Jón Gnarr: Uppistandari sem snéri sér að leiklistinni. Jón er einn af ástkærustu gamanleikurum sinnar kynslóðar og hefur með hlutverki sínu sem Georg, sýnt að hann er öflugur leikari. Pétur Jóhann Sigfússon: Pétur skaust upp á stjörnuhimininn árið 1999 þegar hann var kosinn uppistandari ársins. Hann hefur leikið í tveimur bíómyndum og 6 sjónvarpsseríum. Jörundur Ragnarsson: verðlaunaður leikari sem hefur leikið í þremur bíómyndum og fjölmörgum sviðsuppsetningum. Jörundur útskrifaðist úr leiklist 2006 og hefur síðan hlotið skjótan frama. Jóhann Ævar Grímsson: Eftirtektaverður ungur höfundur sem hefur skrifað vinsæla sjónvarpsþætti og einnig höfundur að handriti Astrópíu.

 

LEIKSTJÓRI: Ragnar hefur verið tilnefndur hvorki meira né minna en þrjátíu og tvisvar sinnum til Eddu verðlaunanna og hlotið Edduna fyrir helming tilnefninganna. Ragnar hafði leikstýrt þremur bíómyndum og fjölda sjónvarpsþátta áður en hann tók að sér Vaktirnar og seinna Bjarnfreðarson. Ragnar er einn fárra íslenskra leikstjóra sem sem hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu fyrir störf sín.

 

FRAMLEIÐENDUR. Framleiðsluteymið sem kom að gerð Bjarnfreðarsonar er eitt reyndasta framleiðsluteymi á íslandi með fjölda sjónvarpþátta og bíómynda í ferilskránni. Meðal verka eru: Köld Slóð og fjölda sjónvarpsþátta á borð við: -Nætur, -Dag og –Fangavakt, Ástríðí, Rétt, Svarta Engla, Pressu, Stelpurnar og Svínasúpuna.  Aðalframleiðandi: Kjartan Þór Þórðarson Framleiðandi: Magnús Viðar Sigurðsson. Aðstoðarframleiðendur: Arnbjörg Hafliðadóttir og Harpa Elísa Þórsdóttir.

 

Staða: Gefin út í desember 2009. Framleitt af Sagafilm. Lengd: 109 mínútur. Tegund: Gaman/Hörmung. Tekið á RED 4K sumarið 2008. Til á 35mm filmu og einnig fyrir stafrænar sýningarvélar.

Videos:
Bjarnfreðarson Trailer

Leita