Sagafilm

Fara i siduyfirlit

Heiti síðu

Fangavaktin

Í fangavaktinni fylgjumst við með þríeykinu, sem flestir ættu að vera farnir að kannast við, á leið í fangelsi. Georg og Daníel eru að hefja afplánun sína fyrir þátt sinn í dauða hótelstjórans og fyrrverandi yfirmanns þeirra, Guggu. Ekki líður á löngu fyrr en Ólafur bætist í hópinn fyrir sakir sem Georg á að sjálfsögðu þátt í að klína á hann. Stórskostlegir atburðir henta þá félagana á meðan á dvöl þeirra á bak við lás og slá stendur. Einnig fáum við að kynnast mörgum nýjum persónum sem spila stór hlutverk í þeirra lífi á meðan þeir afplána dóminn.

YFIRLIT
Sagafilm kynnir gaman/harmleikinn FANGAVAKTINA í leikstjórn Ragnars Bragasonar. Handrit eftir Ragnar Bragason, Jóhann Ævar Grímsson og aðalleikara þessa þáttaraðar sem er í sjö þáttum. Þættir þessir eru framhald af hinum gríðarvinsælu þáttum um þá félaga í Nætur og Dagvaktinni sem hlutu Edduverðlaunin bæði 2007 og 2008 fyrir besta leikna sjónvarpsefnið þess árs. Einnig fékk Pétur Jóhann Sigfússon Edduna sem vinsælasti sjónvarpsmaður að mati áhorfenda og Næturvaktin hlaut verðlaunin sem vinsælasti sjónvarpsþátturinn að mati áhorfenda.
Þeir Georg og Daníel talast ekki við eftir að þeir eru fundnir sekir um morðið á Guggu. Georg tekur fljótlega upp gamla siði og leggst á þá veikbyggðu og finnur einn til að taka við skipunum. Daníel skríður sífellt lengra inní skelina algjörlega ófær um að takast á við lífið innan fangelsismúrana. Georg ávinnur sér traust ógæfumannsins Kenneth sem honum tekst að stjórna í einu og öllu. Fljótlega kemst Georg þó að því að Kenneth kemur aldrei í stað Ólafs. Hann setur þá saman áætlun um að koma Ólafi til sín í fangelsið en mistekst í fyrstu tilraun. Ólafur endar þó í fangelsi á endanum með smá hjálp frá Georg.
“Bestu augnablik í íslenskri sjónvarpsgerð” eru meðal þeirra setninga sem hafa verið notaðar við lýsingar á Vöktunum, sem slegið hafa út öll fyrri áhorfendamet hjá Stöð 2. Fangavaktin var tekin upp á RED myndavélar sumarið 2009 og frumsýndar í Nóvember sama ár.
 
HÖFUNDAR. Ragnar Bragason: Leikstjóri sjónvarpsþáttanna og bíómyndarinnar um þríeykið. (Sjá neðar) Jón Gnarr: Uppistandari sem snéri sér að leiklistinni. Jón er einn af ástkærustu gamanleikurum sinnar kynslóðar og hefur með hlutverki sínu sem Georg, sýnt að hann er öflugur leikari. Pétur Jóhann Sigfússon: Pétur skaust upp á stjörnuhimininn árið 1999 þegar hann var kosinn uppistandari ársins. Hann hefur leikið í tveimur bíómyndum og 6 sjónvarpsseríum. Jörundur Ragnarsson: verðlaunaður leikari sem hefur leikið í þremur bíómyndum og fjölmörgum sviðsuppsetningum. Jörundur lærði leiklist 2006 og hefur síðan hlotið skjótan frama. Jóhann Ævar Grímsson: Eftirtektaverður ungur höfundur sem hefur skrifað vinsæla sjónvarpsþætti og einnig höfundur að handriti Astrópíu.
 
LEIKSTJÓRI: Ragnar hefur verið tilnefndur hvorki meira né minna en þrjátíu og tvisvar sinnum til Eddu verðlaunanna og hlotið Edduna fyrir helming tilnefninganna. Ragnar hafði leikstýrt þremur bíómyndum og fjölda sjónvarpsþátta áður en hann tók að sér Vaktirnar og seinna Bjarnfreðarson. Ragnar er einn fárra íslenskra leikstjóra sem sem hefur hlotið alþjóðlega viðurkenningu fyrir störf sín.
 
Staða: Gefið út 2009
Framleiðandi: Sagafilm
Lengd: 7x30 mínútur
Tegund: Gaman/Harmleikur


Leita