Heiti síðu
Kvikmyndir
Sagafilm stefnir að framleiðslu nokkurra kvikmynda í fullri lengd á næstu misserum.
Myndirnar eru á mismunandi framleiðslustigum, sumar leita enn fjármagns en aðrar eru lengra komnar, þar á meðal má nefna Kalda slóð sem frumsýnd var í dessember 2006.
Sagafilm tók þátt í íslenska kvikmyndavorinu á áttunda áratugnum og framleiddi kvikmyndina Húsið í leikstjórn Egils Eðvarssonar árið 1983. Fyrirtækið hefur síðan komið að framleiðslu fleiri kvikmynda en með fyrirsjáanlegri grósku í íslenskri kvikmyndagerð ætlar Sagafilm að hasla sér völl enn á ný og taka forystuna. Sagafilm hefur sem fyrirtæki styrkinn og stærðina til að fást við stór verkefni á borð við framleiðslu íslenskra kvikmynda og starfsfólk tengt fyrirtækinu býr yfir afburðareynslu á þessu sviði. Því er það einlæg ósk forystumanna Sagafilm að fyrirtækið geti lagt sitt af mörkum til eflingar íslenskri kvikmyndagerð.
Um þessar mundir er unnið að eftirtöldum myndum auk Kaldrar slóðar:
Guð skapaði morð og Slóð fiðrildanna.

Köld slóð![]() Kvikmyndin Köld slóð var frumsýnd í desember 2006. Vinna við myndina á tökustað hófst í febrúar 2006 og stóðu tökur yfir í 6 vikur. |
Og Guð skapaði morð![]() Kvikmynd í fullri lengd, sem er á framleiðsluáætlun ársins. |
Bjarnfreðarson![]() Átakasaga sem nær yfir hálfa öld. Eilífðarstúdentinum Georgi Bjarnfreðarsyni hefur verið sleppt úr fangelsi. Hann er þó enn fangi eigin fortíðar. |


