Sagafilm

Fara i siduyfirlit

Heiti síðu

Myndgerð mússík

Framleiðsla tónlistarmyndbanda fyrir hefðbundna dreifingu er yfirleitt ekki talinn sérlega ábatasamur.

Oft á tíðum er litið á gerð tónlistarmyndbandsins sem góða æfingu fyrir leikstjóra og aðra þá sem að verkinu koma, æfingu sem gerir þeim fært að segja sögu á annan hátt en nýtist við gerð auglýsinga eða sjónvarpsþátta.

Sum þeirra tónlistarmyndbanda, sem fela sig á hillum Sagafilm eru hreinar perlur tónlistarsögunnar, þar á meðal eru Sykurmolarnir, Mezzoforte og sjálfur Gleðibankinn. Nýjustu tónlistarmyndböndin úr smiðju starfsmanna Sagafilm hafa svo verið tilnefnd til ýmissa verðlauna ár eftir ár.

Quarashi - Payback

"Við erum sveitin, sem skapaðist í tóminu en hlustum á heiminn og framleiðum svo tónlist", segir Sölvi Blöndal, tónlistarmaður og stjórnandi hljómsveitarinnar Quarashi.
» Meira

Crazy bastard

Snarvitlausir töffarar vaða uppi í tónlistarmyndbandinu Crazy bastard í leikstjórn þeirra Samúels og Gunnars.
» Meira

If, Land og synir

Tónlistarmyndbandinu If er leikstýrt af Samuel og Gunnari.
» Meira

Hjálpum þeim

Tónlistarmyndbandið Hjálpum þeim er framleitt í tengslum við söfnun vegna fórnarlamba jarðskjálfanna í Pakistan árið 2005.
» Meira

Mugison - A little trip to heaven

Mugison er meðal þeirra listamanna okkar, sem ef til vill gæti orðið næsta alþjóðlega stjarna þjóðarinnar.
» Meira

Christina - Surfing the air

Í tónlistarmyndbandinu Surfing the air er tónlistin samofin íslenskri náttúru á einstakan hátt.
» Meira

Maria Mena - You're the only one

María Mena var nýjasta greinin á sölulista Sony Music í Noregi, þegar menn þar á bæ tóku ákvörðun um að Ísland skyldi verða bakgrunnur tónlistarmyndbandsins You´re the only one.
» Meira


Leita