Sagafilm

Fara i siduyfirlit

Heiti síðu

Sagafilm rakar inn verðlaunum á Eddunni

Edduverðlaunin voru afhent við hátíðlega athöfn í Háskólabíói þann 27. febrúar síðastliðinn.

Sagafilm var tilnefnt til 30 verðlauna í 16 flokkum sem er besti árangur sem nokkurt framleiðslufyrirtæki hefur náð.  Það er skemmst frá því að segja að Bjarnfreðarson og Fangavakt voru sigurvegarar kvöldsins.  Bjarnfreðarson hlaut 6 Eddur fyrir; kvikmynd ársins, leikstjórn, leikara ársins, handrit, kvikmyndatöku Bergsteins Björgúlfssonar og búninga.  
Fangavaktin hlaut einnig 6 verðlaun sem besti leikna sjónvarpsefni ársins, Björn Thors vann flokki meðleikara, klipping ársins féll í hlut Guðna Halldórssonar og Sverris Kristjánssonar, en auk þessa deildi Fangavaktin 3 verðlaunum með Bjarnfreiðarsyni fyrir leikstjórn Ragnars Bragasonar, leikara ársins, Jón Gnarr og búninga Helgur Rósar V. Hannam.

Published: 04.03.2010 14:43


Leita