Sagafilm

Fara i siduyfirlit

Heiti síðu

Samúel & Gunnar

Samúel og Gunnar hafa myndað leikstjórnartvíeyki í nokkuð mörg ár. Þrátt fyrir ungan aldur hafa þeir félagar verið í bransanum í nær áratug.

Silja Hauksdóttir

Silja Hauksdóttir hefur komið víða við í kvikmyndagerð bæði sem handritshöfundur og leikstjóri fyrir kvikmyndir og sjónvarp.

Sævar Guðmundsson

Sævar hefur unnið við kvikmyndagerð síðan 1990. Sævar er fæddur og uppalin í höfuðstað norðurlands, Akureyri og hóf ferilinn á gerð stuttmynda, þar sem hraði og áhætta voru í forsæti.

Einar Snorri

Einar Snorri tók uppá því að taka ljósmyndir af vini sínum Eið snemma árs 1990. Fóru þeir félagar svo niður í þrönga kjallaraholu til að lýsa myndunum á mattan pappír. Pappírnum svo dýpt ofan í vökvabakkana af tilviljunarhendi! Þetta kallaði á mjög áhugaverða útkomu, sem var einmitt það sem kveikti eldmóðinn fyrir áframhaldandi tilraunamennsku. Þessi nýju myndrænu vísindi urðu fljótt að atvinnu og fyrr en varði voru bræður flognir á braut yfir hafið langa og komnir í feitt í vestrinu. Ljósmynd varð að kvikmynd sem fljótt dansaði fjörug á myndfletinum. Einar Snorri vinnur núna einn á bát að enn frekari tilraunum, hér fyrir Saga Film. Til er í tusk af öllu tagi – kvikmynda list ef það er í lagi.

Guðjón Jónsson

Guðjón er fæddur í Reykjavík. Strax í menntaskóla kviknaði hjá honum brennandi áhugi á kvikmyndagerð og hann eyddi meiri tíma í klippiherberginu í skólanum en skólastofunni. Þegar hann var einungis nítján ára var honum boðið starf hjá Norðuljósum, síðar 365. Það leið ekki langur tími þar til hann var skipaður yfirmaður hönnunardeildarinnar.

Ragnar Agnarsson

Ragnar Agnarsson er fæddur í Reykjavík og hóf feril sinn í sjónvarpsiðnaðinum á níunda áratug síðustu aldar.

Melissa Silverman

Melissa Silverman er borin og barnfædd í New York. Hún stundaði framhaldsnám í Los Angeles og útskrifaðist frá Northwestern með gráðu í kvikmyndafræðum. Eftir það lá leiðin í skapandi vinnu hjá ýmsum framleiðslufyrirtækjum á sviði kvikmynda og sjónvarpsiðnaðar, þar sem afraksturinn var m.a. stuttmyndir, sem söfnuðu verðlaunum.


Leita