Sævar Guðmundsson
Sævar hefur unnið við kvikmyndagerð síðan 1990. Sævar er fæddur og uppalin í höfuðstað norðurlands, Akureyri og hóf ferilinn á gerð stuttmynda, þar sem hraði og áhætta voru í forsæti. Síðar lá leiðin um ýmis framleiðslufyrirtæki, sjónvarpsstöðvar, framleiðslufyrirtækið Mad á Indlandi og að lokum til Sagafilm.
Sævar er þekktur fyrir nákvæmnisvinnu þegar kemur að handritsgerðinni, leikurum fellur stjórnunarstíll hans vel og síðast en ekki síst eru viðskiptavinir og tæknifólk í öruggum höndum, þegar Sævar kemur að verkinu. Sævar er á heimavelli í eftirvinnslunni og auglýsingar hans bera þess oft merki að blandað er saman ýmsum tæknibrellum. Sævar er einstakur heiðursmaður með staðfasta lund og einbeitta sýn á gæði þeirrar vinnu, sem hann skilar frá sér.
|