Samúel & Gunnar
Samúel og Gunnar hafa myndað leikstjórnartvíeyki í nokkuð mörg ár. Þrátt fyrir ungan aldur hafa þeir félagar verið í bransanum í nær áratug.
Báðir hófu feril sinn á því að grúska í myndbandaklúbbi skólans, þaðan barst leikurinn í hin og þessi störf í framleiðsluiðnaðinum. Samúel er á heimavelli í eftirvinnslunni, þar sem hann hafði ofan af fyrir sér sem klippari í nokkur ár. Gunnar hefur einnig unnið sem klippari og komið að fjölda auglýsinga, tónlistarmyndböndum og kvikmyndum. Sem leikstjórnartvíeyki hafa þeir félagar náð miklum vinsældum allt frá byrjun og hafa þeir unnið til fjölda verðlauna fyrir sjónvarpsauglýsingar og tónlistarmyndbönd. Báðir hafa þeir gott auga fyrir smáatriðum og eiga auðvelt með að umgangast fólk af virðingu og umhyggju. Já, þeir eru fjöllistamenn, drengirnir. Engir aðrir íslenskir auglýsingaleikstjórar hafa verið tilnefndir til jafn margra verðlauna eða unnið jafn mörg, eins og Samúel og Gunnar.
|